Kæru Emblur,
Fyrsta fyrirtækjaskoðunin okkar á þessu ári verður hjá MBA systur okkar henni Arnþrúði sem að mun útskrifast í vor 2018.
Við ætlum að heimsækja Vistor og þar munu Arnþrúður og Gunnur Helgadóttir (MBA frá HR) taka á móti okkur. Gunnur mun halda fyrirlestur og leiða okkur um starfsemi Vistor.
Tími: 15. febrúar 2018, kl. 17:30 – 19:30
Staðsetning: Hörgatúni 2, 210 Garðabær
Þú getur skráð þig á viðburðinn hér: Emblur heimsækja Visitor
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi.
Frekari upplýsingar um Vistor má finna hér: Visitor
Endilega takið dagsetninguna frá og fjölmennum.
Léttar veitingar verða í boði.